Bókalisti Stanford Social Innovation Review

Listi Stanford Social Innovation Review yfir bækur ársins 2020 á sviði þriðja geirans og samfélagslegrar nýsköpunar. Listann í heild ásamt bókagagnrýni má sjá hér.

Social Entrepreneurship: New Models of Sustainable Social Change

Nicholls, Alex. Social Entrepreneurship: New Models of Sustainable Social Change. Oxford; New York: Oxford University Press, 2006.

The Power of Unreasonable People: How Social Entrepreneurs Create Markets That Change the World

Elkington, Hartigan og Schwab. The Power of Unreasonable People: How Social Entrepreneurs Create Markets That Change the World. Boston, MA: Harvard Business Press, 2008.

Félagslegir frumkvöðlar

Samfélagslegir frumkvöðlar: Gildi og mikilvægi

Samfélagslegir frumkvöðlar: Gildi og mikilvægi er hluti af meistaraverkefni Árdísar Ármannsdóttur, gefið út af Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Geoff Mulgan

Social Innovation: How Societies Find the Power to Change

Social Innovation: How Societies Find the Power to Change. Geoff Mulgan fer yfir samfélagslega nýsköpun í sögulegu samhengi, framfarir á síðustu áratugum og loks hvernig nýta megi samfélagslega nýsköpun við að leysa vandamál nútímans.

Geoff Mulgan, 2019.

Safn rita um samfélagslega nýsköpun

Gagnlegt safn rita um samfélagslega nýsköpun. Efni um aðferðir við samfélagslega nýsköpun og upplýsingar um fjármögnun verkefna. Efnið er á sænsku.

(Illustration by iStock/DrAfter123)

Greinar um skapandi hugsun og samfélagslega nýsköpun

Stanford Social Innovation Review hefur birt fjölda greina um skapandi hugsun sem aðferð við samfélagslega nýsköpun. Aðferðin er ólínuleg, skapandi og byggir á notendamiðaðri nálgun. Hér er yfirlit yfir helstu greinar.

Þekking sem nýtist: Tillögur um aukið norrænt samstarf á sviði félagsmála

Kafli um samstarf Norðurlandanna á sviði samfélagslegrar nýsköpunar í skýrslunni „Þekking sem nýtist: Tillögur um aukið norrænt samstarf á sviði félagsmála.“

Árni Páll Árnason. 2018. Þekking sem nýtist: Tillögur um aukið norrænt samstarf á sviði félagsmála. Norræna ráðherranefndin.

Spjaraþon

Spjaraþon er nýsköpunarkeppni um sóun í textíliðnaði.

EMES

EMES er rannsóknarnet háskóla sem stefna að því að byggja upp þekkingu á samfélagslegri nýsköpun.

Innovation på socialområdet– læring i en krisetid

Skýrsla um samfélagslega nýsköpun meðal almannaheillasamtaka í fyrstu bylgju COVID faraldursins.

Tænketanken Mandag Morgen og Bikubenfonden, 2020



Hlaða niður

En metodpalett för social innovation

En metodpalett för social innovation er rit um aðferðir við samfélagslega nýsköpun. Ritið er gefið út á vegum Mötesplats Social Innovation (MSI) og er á sænsku.

Social Innovation Academy

Social Innovation Academy er rafrænt „námskeið“ um samfélagslega nýsköpun. Á vef verkefnisins má finna upplýsingar um nýsköpunarferlið og félagslega frumkvöðla, viðtöl við frumkvöðla, dæmi um vel heppnaða nýsköpun og margt fleira.

The open book of social innovation

The open book of social innovation er hagnýt og ítarlegt leiðbeiningarrit (eða bók) um aðferðir við samfélagslega nýsköpun. Farið er ítarlega í ýmis ferli nýsköpunar; hvort sem verkefnið er á byrjunarstigi eða komið á það stig að stuðla að kerfislægri breytingu. Bókin er eftir Robin Murray, Julie Caulier-Grice og Geoff Mulgan og kom út árið 2010.

Innovation for Change

Innovation for Change er verkfærakista á sviði samfélagslegrar nýsköpunar. Á vef verkefnisins má finna hagnýt tól og æfingar við samfélagslega nýsköpun sem og svör við spurningum á borð við: Hvernig lítur samfélagsleg nýsköpun út? Hvaða áskoranir standa félagasamtökum sem stunda nýsköpun frammi fyrir? Efnið er gefið út af Innovation for Change sem er verkefni á vegum CIVICUS og MENA Hub.

Social Innovation Podcast

Social Innovation Podcast er sænskt hlaðvarp um samfélagslega nýsköpun.

Henrik Storm Dyrssen, 2020

Social Enterprises and their Eco system in Europe: Country Fiche Iceland

Steinunn Hrafnsdóttir og Ómar H. Kristmundsson unnu greinagerð fyrir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um umhverfi til samfélagslegrar nýsköpunar á Íslandi.

Steinunn Hrafnsdóttir & Ómar H. Kristmundsson. 2019. Social Enterprises and their Eco system in Europe: Country Fiche Iceland. Publications Office of the European Union.



Hlaða niður

Konur í nýsköpun með Ölmu Dóru Ríkarðsdóttur

Alma Dóra Ríkarðsdóttir ræðir við konur í nýsköpun, 2020.

Samfélagsleg nýsköpun og stefnumótun stjórnvalda

Dr. Gary Painter, forsvarsmaður USC Price Center for Social Innovation, fjallar um hlutverk samfélagslegrar nýsköpunar í stefnumótun stjórnvalda.

Hér er hlekkur á myndbandið.

USC Price Center for Social Innovation, 2018.

Hlaðvarp á vegum SSIR

Hlaðvarp á vefsíðu Stanford Social Innovation Review. Samtöl við samfélagslega frumkvöðla.

Stanford Social Innovation Review, 2020

Rannsóknir og samfélagsleg nýsköpun

Skýrsla Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, Social Innovation as a Trigger for Transformations The Role of Research, fjallar um þátt fræðilegra rannsókna í samfélagslegri nýsköpun.

Hvað er samfélagsleg nýsköpun?

Hvað er hlutverk félagsvísinda í samfélagslegri nýsköpun?

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, 2017

Efni
Tegund
Leita