Social Entrepreneurship for Youth er verkefni sem styrkt er af Erasmus+ menntaáætlun Evrópusambandsins og samfélagsfyrirtækið Einurð leiðir og vinnur í samstarfi við aðila á Ítalíu, Grikklandi, Kýpur, Litháen og Norður-Makedóníu. Ein af afurðum verkefnisins er Vegvísir samfélagsfrumkvöðla sem veitir hagnýtar upplýsingar um hugmyndavinnu, þróun, stofnun og fjármögnun samfélagsverkefna og -fyrirtækja.