Úttekt á fyrirkomulagi úthlutana og ráðgjafar hjálparsamtaka – Hvaða hópar leita aðstoðar?

Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur gefið út skýrsluna Úttekt á fyrirkomulagi úthlutana og ráðgjafar hjálparsamtaka – Hvaða hópar leita aðstoðar? sem unnin er fyrir félagsmálaráðuneytið og Velferðarvaktina (2021).

Höfundar skýrslunnar eru Ásdís Aðalbjörg Arnalds, verkefnisstjóri, Guðný Gústafsdóttir, verkefnisstjóri og Steinunn Hrafnsdóttir, prófessor í félagsráðgjöf og stofnandi Vaxandi.

Aðstoð hjálparsamtaka á Norðurlöndunum

Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur gefið út viðauka við skýrsluna Úttekt á fyrirkomulagi úthlutana og ráðgjafar hjálparsamtaka – Hvaða hópar leita aðstoðar? sem unnin var fyrir félagsmálaráðuneytið og Velferðarvaktina árið 2021.

Höfundar skýrslunnar og viðaukans eru Ásdís Aðalbjörg Arnalds, verkefnisstjóri, Guðný Gústafsdóttir, verkefnisstjóri og Steinunn Hrafnsdóttir, prófessor í félagsráðgjöf og stofnandi Vaxandi.

Hönnunarhugsun og stefnumótun

Glæra úr fyrirlestri Guðrúnar Lilju Gunnlaugsdóttur, deildarstjóra miðlunar og nýsköpunar hjá Borgarbókasafni Reykjavíkur sem lýsir stefnumótunarferlinu. Guðrún Lilja kom fram á málþingi Vaxandi og Almannaheilla 2. desember 2020.

Tillögur starfshóps

Tillögur starfshóps um lækkun á skattaálögum almannaheillasamtaka og skattaívilnanir sem hvetji til stuðnings við þau. Hér má lesa skýrslu starfshópsins og upplýsingar um starfshópinn

Tímamótatillögur

Grein Ómars H. Kristmundssonar, Tímamótatillögur, sem birt var á vef Vísis í apríl 2020.  

Efni
Tegund
Leita