Málfundur um loftslagsvænar framfarir
10. nóvember: Málfundur um loftslagsvænar framfarir í kjölfar COVID-19 á vegum Loftslagsráðs og sendiráðs Bretlands á Íslandi.
„Tilgangur fundarins er að hvetja til samstöðu og ábyrgðar stjórnmálamanna, atvinnulífs, sveitarfélaga, félagasamtaka og annarra þegar kemur að loftslagsmálum.“
–
Social Innovation Summit
10. – 11. nóvember: Social Innovation Summit 2020 er spennnandi ráðstefna um samfélagslega nýsköpun á vegum Forum for Social Innovation, Háskólann í Malmö og Malmö borg. Slagorð ráðstefnunnar er „Crisis drive change.“ Ráðstefnan er að stórum hluta á ensku.
–
Academy for Woman Entrepreneurs
12. nóvember: Rafrænn kynningarfundur á nýsköpunarhraðli fyrir konur undir merkjum Academy for Woman Entrepreneurs (AWE). Háskóli Íslands stendur að hraðlinum í samvinnu við bandaríska sendiráðið á Íslandi.
–
Empowering Youth: Green Together!
21. nóvember: Upphafsdagur rafræns gagnaþons fyrir umhverfið ætlað ungum frumkvöðlum.