Vaxandi og Almannaheill þakka Bjarna Benediktssyni, fjármálaráðherra kærlega fyrir að ávarpa málþingið sem fór fram í hádeginu í gær sem og þátttöku hans í góðum umræðum sem sköpuðust í kjölfarið.
Umfjöllunarefni málþingsins var frumvarp um breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld (skattalegir hvatar fyrir lögaðila sem starfa til almannaheilla). Jónas Guðmundsson, formaður Almannaheilla fór yfir innihald frumvarpsins og kom á framfæri mikilvægum sjónarmiðum Almannaheilla. Í frumvarpinu er meðal annars lagt til að einstaklingum sé heimilt að draga frá tekjum sínum gjafir og framlög til almannaheillasamtaka (innan ákveðna marka). Gestir málþingsins komu einnig á framfærum sínum sjónarmiðum og spurningum.
Hér er frumvarpið og greinargerð þess.
Einnig má lesa skýrslu starfshópsins um lækkun á skattaálögum almannaheillasamtaka og skattaívilnanir sem hvetji til stuðnings við þau.