Opnað hefur verið fyrir skráningu í Hacking Norðurland sem er nýsköpunarkeppni eða lausnamót sem fer fram 15.-18. apríl 2021. Þátttaka er ekki háð staðsetningu þar sem mótið fer að mestu fram rafrænt í gegnum Hugmyndaþorpið. Þema mótsins er sjálfbær nýting auðlinda á Norðurlandi: Matur – vatn – orka.
„Markmið lausnamótsins er að efla frumkvöðlastarf og sköpunarkraft á svæðinu.“
Frekari upplýsingar á vefsvæði verkefnisins.