Samfélagsfrumkvöðlar í Úkraínu hafa virkjað tengslanet sín og lagst á árarnar við að styðja við flóttafólk í heimalandinu. Anna Gulevska-Chernys er einn af stofnendum SILab sem er vettvangur samfélagslegrar nýsköpunar og frumkvöðlastarfs í Úkraínu. Hún ræddi við Pioneers Post frá heimili sínu í Kænugarði á þriðjudagsmorgun 1. mars um skelfilegar afleiðingar innrásar Rússa í Úkraínu.
Anna og maðurinn hennar vinna að því að koma fólk í skjól í Kænugarði auk þess að kalla eftir aðstoð frá samstarfsaðilum í European Venture Philanthropy Network (EVPA) til að tryggja aðstoð við flóttafólk sem náð hafa að flýja Úkraínu. Sjá viðtalið við Önnu í heild sinni.