Know Your Rights – lokaráðstefna

Allir eru velkomnir á lokaráðstefna Know Your Rights (KYR) verkefnisins verður haldinn í Þjóðminjasafninu, Suðurgötu 41 – 102 Reykjavík,  miðvikudaginn 20. október kl. 13-16.  Ráðstefnan er á ensku, skráning. Ráðstefnan sem er á ensku er öllum opin. Sjá dagskrá.

Erasmus+ styrkir verkefnið sem Einurð leiðir og vinnur í samstarfi við Jafnréttishús, Compass Austurríki, Center for social innovation í Kýpur, Social Innovation Fund Litháen Acción Laboral og Asociaación Camions Spáni.  Markmið verkefnisins er að auka vitund erlendra starfsmanna um þau réttindi, stuðning og þjónustu sem þeir geta nýtt sér í samstarfslöndunum og samkvæmt Evrópskri vinnulöggjöf.

Afurðir verkefnisins eru þarfagreining á stöðu erlendra starfsmanna í þátttökulöndunum, námskrá og námsefni fyrir jafningja, fræðslumyndbönd og upplýsingasíður um réttindi og stuðning við erlenda starfsmenn á 3-5 tungumálum í hverju landi.  Opið menntaefni og fræðslumyndbönd voru unnin um: lágmarkslaun og skattaumhverfi, vinnuaðstæður og öryggismál, heilsugæslu og sjúkratryggingar, verkalýðsfélög og ráðningasamninga.  

Á Íslandi var unnið fræðsluefni og myndbönd á spænsku, taílensku, rússnesku, arabísku og ensku en horft er til þess að aðlaga fræðsluefni og myndbönd fyrir fleiri tungumálahópa í framtíðinni.  

Deila efni:

Share on facebook
Share on twitter

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *