Viðburðaröð IAVE: Sjálfboðaliðastarf í þágu samfélagsbreytinga

Nú fer fram viðburðaröð um sjálfboðaliðastarf í þágu samfélagsbreytinga með áherslu á uppbyggingu í kjölfar COVID19. Viðburðaröðin er á vegum IAVE (International Associaltion for Volunteer Effort). Um er að ræða fjóra viðburði, einn í hverjum mánuði frá febrúar til maí.

  • Hvernig hefur sjálfboðaliðageirinn brugðist við heimsfaraldrinum?
  • Hvað er hlutverk sjálfboðaliðageirans í uppbyggingu í kjölfar heimsfaraldursins?
  • Hvernig geta ólíkir hagsmunaaðilar unnið að því að byggja upp sjálfboðaliðageirann?

Fyrsti viðburðurinn, Volunteerism and Social Activism, var haldinn 3. febrúar síðastliðinn og má horfa á upptöku hér að neðan.

Dagskrá:

  • 9. mars: Volunteers as Key Actors within Civil Society Dealing with the Impact of COVID-19
  • 12. apríl: Volunteers Taking Action to Support the Recovery of COVID-19
  • 6. maí: Volunteering for Social Change: The Importance of Partnership

Frekari upplýsingar á vef IAVE.

Deila efni:

Share on facebook
Share on twitter

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *