Vekjum athygli á viðburðaröðinni „ÖLLUM TIL HEILLA samtal um samfélagslistir“ sem Reykjavíkurkademían, Öryrkjabandalag Íslands, Listahátíð í Reykjavík, Listaháskóla Íslands, Borgarleikhúsið, Reykjavíkurborg og List án landamæra, standa fyrir vorið 2022.
Fyrsti viðburður af fimm hefst á miðvikudaginn 16. febrúar kl. 15:00-17:00 á stóra sviði Borgarleikhússins í beinni útsendingu. Um er að ræða fyrsta viðburðinn af fimm, á dagskrá eru:
François Matarasso, rithöfundur og samfélagslistamaður: A Restless Art – Why participation won, and why it matters
Hin kvika list – hvers vegna þátttaka skiptir máli
Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir fötlunarlistamaður og sviðshöfundur og Ásrún Magnúsdóttir danshöfundur: Go for it girl Kýldu á það, stelpa
Þar er sjónum beint að mikilvægi lista við inngildingu (e. Inclusion) allra í samfélagið. Samfélags- og þátttökulistir (e. Community and Participatory Art) leyfa óvæntum röddum að berast og bregða upp myndum af lífum þeirra sem búa við hvers kyns skerðingar og jaðarsetningu. Gestgjafarnir Björg Árnadóttir, rithöfundur og félagi í ReykjavíkurAkademíunni og Jóhanna Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Listar án landamæra, leiða samtal í sal og á neti.
Skráning á viðburði fer fram á síðu Öllum til heilla þar sem hægt er að horfa á viðburðina í beinni útsendingu og nálgast upptökur, textaðar og táknmálstúlkaðar frá og með 23. febrúar kl. 12:00. Einnig er hægt að taka þátt í umræðum sem þar fara fram og á FB hópi viðburðaraðararinnar.