Bresku samtökin NCVO hafa gefið út mikið magn fræðsluefnis ætlað almannaheillaamtökum á krefjandi tímum COVID19. Við deilum nokkrum fyrirlestrum úr þeirra safni í þeirri von að þeir nýtist íslenskum almannaheillasamtökum við að aðlaga starfsemi sína að breyttum sóttvarnaraðgerðum.
…………….
Ákvarðanataka á krefjandi tímum
(e. Making decisions in tough times)
Fyrirlestur um aðferðir við ákvarðanatöku á krefjandi tímum. Hér má nálgast glærur úr fyrirlestrinum.
Viltu fá svör við eftirfarandi spurningum?
- Hvaða áskoranir standa sjálfboðaliðasamtök frammi fyrir?
- Hvernig tek ég skjótar ákvarðanir sem þó samræmast langtímamarkmiðum samtakanna?
- Hvernig tek ég góðar ákvarðanir á erfiðum tímum?
…………….
Hvernig má auka seiglu almannaheillasamtaka?
(e. Building organisational resilience: Things for small charities to consider)
Fyrirlestur um hvernig auka megi seiglu almannaheillasamtaka á tímum COVID19.
Viltu fá svör við eftirfarandi spurningum?
- Hvað einkennir þrautseig almannaheillasamtök?
- Af hverju skiptir seigla máli á tímum COVID19?
- Hvernig má auka seiglu almannaheillasamtök?
…………….
Rekstrarbreytingar og stjórnun almannaheillasamtaka
(e. How to manage operational change in a time of uncertainty)
Fyrirlestur um rekstrarbreytingar og stjórnun félagasamtaka. Hér má nálgast glærur úr fyrirlestrinum.