Skráning á Almannaheillafélagaskrá og Almannaheillaskrá

Nýtt skatta- og lagaumhverfi félaga sem starfa í þágu almannaheilla tók gildi 1. nóvember síðastliðinni samanber lög nr. 32/2021 um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (skattalegir hvatar fyrir lögaðila sem starfa til almannaheilla) og lög nr. 110/2021 um félög til almannaheilla.  Síðustu daga hafa borist tilkynningar og leiðbeiningar frá Skattinum um hvernig megi skrá og breyta skráningu félaga í almannaheillafélag þannig að þau fari inn á Almannaheillafélagaskrá. Í vikunni komu inn leiðbeiningar um skráningu á Almannaheillaskrá. það er jafnframt skilyrði fyrir því að geta nýtt sér ávinning af breyttu lagaumhverfi.

Nokkur atriði sem þarf að hafa í huga:

  • Breyting á skráningu félags yfir í að vera almannaheillafélag:  Fylla þarf út eyðublað rsk_17.10 og undirrita af stjórn en því skal fylgja breytt lög/samþykktir félags (sýnishorn af samþykktum fyrir almannaheillafélag) einnig undirritað af stjórn.  Með þessum gögnum þarf að berast kvittun fyrir greiðslu á breytingargjaldi sem er 2.000 kr. og greiðist inn á reikning 0515-26-723000 á kt. 540269-6029 (upplýsingar fengnar frá fyrirtækjaskrá).  
  • Svipað ferli gildir fyrir félög til almannaheilla yfir landamæri sjá leiðbeiningar. En þau eru skráningarskyld skv. lögum nr. 119/2019. Eingöngu er hægt að skila gögnum á pappír fyrir nýskráningu en áður skráð félög geta skilað inn upplýsingum um raunverulega eigendur rafrænt.
  • Frumskráning á almannaheillafélagi: Fylla þarf út eyðublað rsk_17.09 og undirrita, meðfylgjandi þarf að vera tilkynning um raunverulega eigendur rsk_17.28 ásamt stofngögnum, þ.e. samþykktum, stofnsamningi og stofnfundargerð sjá leiðbeiningar. Einnig þarf að fylgja kvittun fyrir greiðslu tilkynningargjalds 30.000 kr. á bankareikning:
     0515-26-723000 á kt. 540269-6029.  Hægt er að senda skönnuð gögn inn til fyrirtækjaskra@skatturinn.is.
  • Skráning á Almannaheillaskrá: Öll félög sem vilja nýta sér ávinning af lögum 32/2021 verða að skrá sig á Almannaheillaskrá í gegnum innskráningu á sitt heimasvæði á þjónustuvef skattsins (skattur.is) sem er tiltölulega einföld skráning sjá tilkynningu og leiðbeiningar frá Skattinum.

Deila efni:

Share on facebook
Share on twitter

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *