„Almenningur er mjög tryggur þessum samtökum“
Þetta segir Jónas Guðmundsson, formaður Almannaheilla, samtaka þriðja geirans sem var gestur morgunvaktarinnar á Rás 1 í morgun. Jónas fjallaði þar um stöðu almannaheillasamtaka í faraldrinum; Almannaheillafélög gegna mikilvægu hlutverki í faraldrinum, þau hafa verið kölluð til á upplýsingafundum almannavarna og hafa mörg hver gjörbreytt starfsemi sinni til að mæta sínum skjólstæðingum.
Hann kom einnig inn á frumvarp sem bíður nú fyrstu umræðu Alþingis um breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld er varða aðila sem starfa til almannaheilla.
Á vef Ríkisútvarpsins má hlusta á viðtalið í heild sinni.