Hjálparsamtök standa vaktina yfir jólin þrátt fyrir heimsfaraldur og samkomutakmarkanir
Forsvarsmenn hjálparsamtaka greina frá því að beiðnum um aðstoð hafi fjölgað mikið á árinu vegna efnahagsþrenginga. Um 40 prósent aukning var á fjölda þeirra sem leituðu aðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar á 6 mánaða tímabili frá mars 2020 samanborið við sama tímabil árið 2019. Forsvarsmenn Hjálparstarfs kirkjunnar áttu von á að aukning á beiðnum um jólaaðstoð yrði sambærileg.
Í samtali við Kjarnann segir Kristín Ólafsdóttir, fræðslufulltrúi Hjálparstarfsins: „Sjálfboðaliðar eru mjög mikilvægir í allri starfsemi Hjálparstarfs kirkjunnar og undanfarið hefur verið í nógu að snúast hjá þeim sem og félagsráðgjöfunum við að undirbúa jólaaðstoðina. Vegna samkomutakmarkana þurfti að skipuleggja hana með öðrum hætti en hingað til.“
Rúmlega 200 manns mættu í jólaboð Hjálpræðishersins á Aðfangadag en þar var farið eftir ítrustu sóttvarnarreglum. Sjá viðtal við Hannes Bjarnason, kaptein Hjálpræðishersins.
Fyrir jól úthlutaði Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, samtals 20 milljónum króna í styrki til eftirfarandi hjálparsamtaka; Hjálpræðisherinn, Hjálparstarf kirkjunnar, Mæðrastyrksnefndir í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Akureyri og Akranesi, Fjölskylduhjálp Íslands og Kaffistofa Samhjálpar. Lesa tilkynningu í heild á vef Stjórnarráðsins.