Vaxandi mælir með nýjasta tölublaði Skinnfaxa, málgagni UMFÍ. Í blaðinu má meðal annars finna:
- Greinina Félagasamtök framtíðarinnar um aðferðir við stjórnun félagasamtaka þar sem sveigjanleiki og teymisvinna eru í fyrirrúmi.
- Svör Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra við spurningum UMFÍ um breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld. Breytingarnar hafa það að leiðarljósi að styrkja og efla skattalegt umhverfi þeirra sem starfa til almannaheilla þar á meðal félagasamtök og íþróttafélög.
- Fréttir af starfi og verkefnum sjálfboðaliða aðildarfélaga UMFÍ. Alls eru um 6100 sjálfboðaliðar sem gefa vinnu sína fyrir íþrótta- og ungmennahreyfingarnar.
- … og ótalmargt fleira!
Tölublaðið má finna hér.