6 spennandi verkefni ætluð börnum og ungmennum hafa fengið styrk úr Æskulýðssjóði í fyrri úthlutun sjóðsins. Sérstök áhersla var á að styrkja verkefni sem stuðla að nýsköpun í æskulýðsstarfsemi. Finna má lista yfir verkefnin á vef Rannís. Dæmi um verkefni sem hlaut styrk að þessu sinni er Æskulýðsvettvangurinn vegna verkefnisins Vitundarvakning um neteinelti.
Umsóknarfrestur fyrir seinni úthlutun Æskulýðssjóðs er 15. október nk.