Átta nýsköpunarverkefni í Snjallræði

Átta nýsköpunarverkefni hafa verið valin til þátttöku í samfélagshraðlinum Snjallræði. Teymin bak við verkefnin taka þátt í átta vikna dagskrá sem unnin er í samstarfi við sérfræðinga frá MIT designX, Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Listaháskóla Íslands. Höfði friðarsetur Reykjavíkurborg og Háskóli Íslands standa fyrir hraðlinum og framkvæmd hans er í höndum Höfða friðarseturs og Icelandic Startups.

„Markmiðið með hraðlinum er að veita þeim einstaklingum sem brenna fyrir bættu samfélagi vettvang til þess að þróa hugmyndir sínar áfram og finna þeim sjálfbæran farveg svo þær geti blómstrað og dafnað.“

Á vef Snjallræðis má lesa um teymin sem hafa verið valin til þátttöku!

Deila efni:

Share on facebook
Share on twitter

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *