Einkenni og umhverfi frjálsra félagasamtaka á Norðurlöndunum

  • Hvert er hlutverk frjálsra félagasamtaka á Norðurlöndunum?
  • Hvernig er starfsemi frjálsra félagasamtaka á Norðurlöndunum fjármögnuð?
  • Hvaða áskoranir standa frjáls félagasamtök á Norðurlöndunum frammi fyrir?

Þetta eru meðal spurninga sem teknar eru fyrir í nýrri skýrslu um einkenni og umhverfi frjálsra félagsamtaka á Norðurlöndunum. Skýrslan sem er byggð á viðtölum við sérfræðinga í málefnum þriðja geirans á öllum Norðurlöndunum er gefin út í tengslum við fyrirhugaðan Norðurlandafund borgaralegra samtaka (e. Nordic summit for civil society. Fyrir hönd Íslands var tekið viðtal við Steinunni Hrafnsdóttur, prófessor í félagsráðgjöf og stofnanda Vaxandi.

Dönsku samtökin Center For Frivilligt Socialt Arbejde standa að verkefninu í samstarfi við Tænketanken Mandag Morgen. Norræna ráðherranefndin styrkir verkefnið.

Hér er skýrslan í heild á dönsku og hér er úrdráttur á ensku.

Deila efni:

Share on facebook
Share on twitter

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *