Ný rannsókn á vegum Institute for Volunteering Research í Háskólanum East Anglia, Spirit of 2012 og What Works Centre for Wellbeing í Bretlandi greinir jákvæð tengsl þess að stunda sjálfboðaliðastörf og finna fyrir bættri lífsánægju og lífsgæðum.
Helstu niðurstöður eru:
- Að jákvæð tengsl séu milli þess að stunda sjálfboðaliðastarf og lífsánægju og lífsgæða.
- Þessi jákvæðu áhrif virðast vera sterkari hjá eldri sjálfboðaliðum, atvinnulausum sjálfboðaliðum og þeim sjálfboðaliðum sem eiga við langvarandi veikindi að stríða en öðrum.
- Þessir sömu hópar mæta frekar hindrunum þegar þeir sækjast eftir að stunda sjálfboðaliðastörf en aðrir.
- Ef álag á sjálfboðaliðum er of mikið getur starfið haft öfug áhrif.
Lesa má um rannsóknina á vef Institute for Voluteering Research þar sem niðurstöðurnar eru settar í samhengi við umhverfi heimsfaraldurs sem við búum við í dag.
Nefna ber að Institute for Volunteering Research er í samstarfi við Vaxandi.