Öllum ætti nú að vera ljóst að borgarasamfélagið er og verðum um ókomna framtíð mikilvægur hlekkur í viðbrögðum við hamförum. Þetta segir í inngangi á nýrri skýrslu á vegum CIVICUS um borgarasamfélagið sem kallast „Samstaða á krísutímum.“
CIVICUS er alþjóðlegt bandalag borgarasamtaka. Markmið bandalagsins er að styrkja borgarasamfélagið um allan heim.
Í skýrslunni er farið yfir stöðu borgarasamfélagsins í ljósi heimsfaraldurs, viðbrögð borgarasamfélagsins út um allan heim við faraldrinum og hugmyndir að næstu skrefum.
Í skýrslunni kemur fram að borgarasamfélagið:
- Veiti nauðsynlega þjónustu á tímum COVID19 til dæmis matargjafir og neyðarhjálp.
- Sé mikilvægur hlekkur í miðlun upplýsinga t.d. í gegnum netið og í gegnum list.
- Sé vörður mannréttindi á hamfaratímum
- Og svo margt fleira!
Við mælum með að lesa skýrsluna og kynnast fjölbreyttum verkefnum borgarasamfélagsins um allan heim.